Heimildin hlaut tvenn verðlaun af fernum á afhendingu Blaðamannaverðlauna Blaðamannafélags Íslands í dag. Verðlaunin voru veitt fyrir viðtal ársins, umfjöllun ársins, rannsóknarblaðamennsku ársins og blaðamannaverðlaun ársins. Bjartmar Oddur Þeyr Alexandersson er rannsóknarblaðamaður ársins. Verðlaunin fékk hann fyrir fréttaskýringu sína í Heimildinni um endurvinnsluferli drykkjarferna. Afhjúpaði rannsókn hans að fernur, sem margir Íslendingar höfðu flokkað jafnvel árum saman í þeirri trú að...