Rauðasandur á Vestfjörðum er á listum breska ferðavísisins The Lonely Planet yfir bestu strandir í Evrópu og bestu strandir í heimi. The Lonely Planet er einn virtasti ferðavísir í heimi og hafa ýmsir staðir á Íslandi komist á lista hjá honum í gegnum árin.Rauðasandur er skeljasandsfjara við sunnanverða Vestfirði, rétt austur af Látrabjargi. Fjaran er ein mesta skeljasandsfjara á Íslandi og sandurinn fær rauðan blæ af skel hörpudisks.Rauðasandur er á lista yfir bestu strandir í Evrópu með Hauklandströnd í Lofoten í Noregi, sem trónir á toppi listans. Á lista yfir bestu strandir í heimi eru meðal annars Ipanema-strönd í Brasilíu og Dueodde í Borgundarhólmi í Danmörku. Besta strönd í heimi er The Pass í Byron-flóa í Ástralíu en öldurnar þar þykja mjög góðar til að fara á brimbretti, hvort se