Eitur í flösku sem rataði til Endurvinnslunnar á Akureyri hefur verið sent til Reykjavíkur í efnagreiningu. Niðurstöðu hennar er að vænta á næstu vikum.Lögreglufulltrúi á Akureyri segir að þeim sem fengu aðhlynningu á bráðamótttöku í gær, vegna óþæginda í hálsi og augum, heilsist vel og óþægindin hafi gengið fljótt yfir. 2-300 MILLILÍTRAR Í VATNSFLÖSKU Um tvö til þrjú hundruð millilítrar af efninu óþekkta voru í vatnsflösku sem starfsmenn Endurvinnslunnar helltu úr í niðurfall í gær. Slökkvilið hreinsaði húsnæði Endurvinnslunar og ræsi og ekki er talin hætta á að efnið valdi tjóni í fráveitukerfi.Húsið er talið öruggt og Endurvinnslan á Akureyri var opnuð klukkan tíu í morgun eins og venja er.Íbúar á Eyrinni, sunnan Furuvalla, voru beðnir að halda sig innandyra í um tvær klukkustundir v