Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

AtNorth fær lóð fyrir enn stærra gagnaver á Akureyri

Gagnaver AtNorth á Akureyri var opnað 9. júní 2023. Gagnaverið er í um 2.500 fer­metra byggingu og við opnunina voru strax kynntir möguleikar á frekari stækkun. BÆJARSTJÓRN SAMÞYKKTI UMSÓKN ATNORTH UM STÆKKUN 3. nóvember sótti fulltrúi AtNorth um 7,882 fermetra lóð við Hlíðarvelli á Akureyri, austan núverandi lóðar fyrirtækisins. Þar hyggst AtNorth reisa þrjú hús til viðbótar við þau tvö sem hýsa núverandi gagnaver.Umsóknin hefur verið í ferli hjá bænum og tekin fyrir í skipulagsráði, bæjarráði og bæjarstjórn. Á fundi sínum í gær samþykkti bæjarstjórn svo með 10 atkvæðum að úthluta AtNorth lóðinni Hlíðarvöllum 3, án auglýsingar. Bæjarfulltrúi Vinstri grænna sat hjá. ORKUÞÖRFIN ALLT AÐ 14 MEGAVÖTT Samkvæmt upplýsingum frá AtNorth er áætlað að framkvæmdir við stækkun gagnaversins kosti

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta