„Ég man hreinlega ekki allan fjöldann af stöðum þar sem líkið að hafa verið,“ segir Hörður Jóhannesson fyrrum rannsóknarlögreglumaður en hann er einn af þeim sem kom að rannsókninni á hvarfi Valgeirs Víðissonar á sínum tíma. Í sumar eru liðin þrjátíu ár síðan Valgeir Víðisson hvarf sporlaust af heimili sínu á Laugavegi. Ekkert hefur spurst til hans síðan. Enn í dag er málið óupplýst.