Apple hefur mestu markaðshlutdeild farsímafyrirtækja og hefur tekið fram úr Samsung sem stærsti farsímaframleiðandi í heimi. Þetta kemur fram í nýjum tölum frá Alþjóðlegu gagnastofnuninni (e. International Data Corporation) fyrir árið 2023. Ástæðuna má rekja til aukinnar eftirspurnar eftir lúxussnjallsímum og aukinnar fjölbreytni í framleiðsluu snjallsíma með Android-stýrikerfi. Fleiri fyrirtæki eru farin að framleiða síma með því stýrikerfi. Apple seldi tæplega 235 milljónir farsíma en Samsung seldi tæplega 227 milljónir farsíma. Apple er því með 20,1 prósent markaðshlutdeild en Samsung er rétt á eftir með 19,4 prósent. Tæplega 1,2 milljarðar snjallsíma voru seldir í fyrra en salan hefur þó minnkað um rúmlega þrjú prósent á milli ára. Ekki hafa verið seldir svo fáir snjallsímar í áratug.