Herdís Dröfn Fjeldsted hefur nú verið ráðin forstjóri Sýnar. Mun hún hefja þar störf þann 11. janúar. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu. Herdís var áður forstjóri Valitor en hún hefur einnig verið framkvæmdastjóri Framtakssjóðs Íslands. Herdís hefur setið í fjölda stjórna hjá ýmsum fyrirtækjum. Þeirra á meðal eru Arion banki, Icelandair Group, Icelandic Group og Promens. Herdís er viðskiptafræðingur...