Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Kveiktu í bíl með molotov-kokteil

Rannsókn Lögreglunnar á Norðurlandi eystra hefur leitt í ljós að molotov-kokteill, eða bensínsprengja, var notaður til að kveikja í bíl á Akureyri í september á síðasta ári. Tveir fullorðnir karlmenn stóðu að brunanum.Í byrjun september 2022 var tilkynnt um bílabruna fyrir utan fjölbýlishús við Kjarnagötu á Akureyri. Tæpum sjö klukkustundum síðar barst önnur tilkynning um bílabruna í nærliggjandi götu, Pílutúni.Í báðum tilfellum var ljóst að um íkveikju var að ræða. Síðari bruninn, í Pílutúni, er nú talinn fullupplýstur. Þar eiga tveir grímuklæddir karlmenn að hafa komið svokölluðum molotov-kokteil fyrir í bílnum með þeim afleiðingum að hann skemmdist töluvert.Fyrri bruninn, í Kjarnagötu, er þó ekki fullupplýstur. Skarphéðinn Aðalsteinsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn, segir því ekki hægt að

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Engin ummæli

Um Blaðbera