Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Fjórtán áramótabrennur á höfuðborgarsvæðinu

Kveikt verður í áramótabrennum víðs vegar um höfuðborgarsvæðið á gamlárskvöld. Það er rík hefð hjá mörgum fjölskyldum að fara að brennu eftir kvöldmat. Eiga þar góða stund saman áður en kynslóðirnar koma sér vel fyrir framan sjónvarpið til að horfa á Áramótaskaupið.Vakin er athygli á því að óheimilt er að vera með flugelda og skotblys við brennur en leyfilegt að vera með stjörnuljós og blys önnur en skotblys. Minnt er á hlífðargleraugu og hanska.

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Engin ummæli

Um Blaðbera