Athafnamaðurinn Anton Þórarinsson, einnig þekktur sem Toni, hefur sett glæsilegt einbýlishús sitt á Arnarnesinu í Garðabæ á sölu. Húsið, sem er enn í byggingu, telur rúma 620 fermetra á tæplega 1500 fermetra lóð, en fasteignamat þess er 258 milljónir króna, og brunabótamat tæpar 138 milljónir.