Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Seinka skóladeginum í unglingadeildum borgarinnar

Skóladegi unglingadeilda í Reykjavík verður seinkað frá og með haustinu 2024. Skóladagurinn mun hefjast í fyrsta lagi klukkan 8:50 að morgni. Árgangar mega einnig byrja seinna að morgni, það er í höndum stjórnenda og starfsfólks hvers skóla að útfæra breytinguna. Í bréfi sem Helgi Grímsson, sviðsstjóri skóla- og frístundasviðs hjá Reykjavíkurborg, sendi foreldrum barna í unglingadeild grunnskóla borgarinnar í kvöld, segir að um sé að ræða tilraunaverkefni til þriggja ára.Verkefnið var samþykkt í borgarráði í kjölfar tveggja rannsókna sem stýrt var af Erlu Björnsdóttur, sálfræðingi og svefnsérfræðingi. Í kjölfarið var skipaður starfshópur um málið.Þar höfðu aðkomu fulltrúar nemenda, skólastjórnenda, Íþróttabandalags Reykjavíkur (ÍBR), Heimila og skóla auk fulltrúa frá Reykjavíkurborg, að þv

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Engin ummæli

Um Blaðbera