Ölfus, Orkuveitan og Títan kynntu á þriðjudag áform um að sækja sameiginlega um rannsóknarleyfi vegna nýtingu jarðhita í Ölfusdal. Þar sé fyrirhugað að framleiða rafmagn og heitt vatn.Þessi yfirlýsing kom flatt upp á bæjaryfirvöld í Hveragerði sem bókuðu undrun sína á bæjarstjórnarfundi í gær. > „Bæjarstjórn Hveragerðisbæjar undrast hálýstar yfirlýsingar í fjölmiðlum í gær um virkjanaáform í Ölfusdal og samstarf Orkuveitu Reykjavíkur, Sveitarfélagsins Ölfuss og Títans án nokkurs samráðs eða aðkomu Hveragerðisbæjar að því máli. Eins og fram hefur komið er Ölfusdalur að stærstum hluta í Hveragerði og að minnihluta í Ölfusi. Það er furðulegt að fara af stað með slík áform án þess að Hveragerðisbær eigi aðkomu að málinu því ljóst er að virkjanaframkvæmdir munu hafa mest áhrif á íbúa Hveragerð