Það myndi kosta allar lánastofnanir samanlagt um milljarð að frysta lán Grindvíkinga án þess að vextir og verðbætur bættust við.Verkalýðsfélag Grindavíkur hefur gengið á milli lánastofnana undanfarna daga og beðið bankana um að frysta lán íbúa án þess að vextir og verðbætur bætist áfram við. Við spurðum formann verkalýðsfélagsins, Hörð Guðbrandsson, hvort árangur hefði náðst á fundunum.„Það hefur ekki mikið komið út úr þeim enn sem komið er. Krafan hjá okkur er sú að vextir og verðbætur falli niður í þrjá mánuði og það sé frysting,“ segir Hörður.Spurður hvort því fylgi mikill kostnaður fyrir fjármálafyrirtækin ef þessi leið yrði farin svarar Hörður: „Nei, það myndi ég ekki segja. Við slógum svona lauslega á þetta og þetta er að hámarki milljarður fyrir öll fjármálafyrirtækin.“Og þá á hann