Báðum yfirlæknum Heilbrigðisstofnunar Norðurlands á Akureyri hefur verið sagt upp störfum. Starfsfólk segist fordæma ákvörðunina þegar sárlega vanti heimilislækna til starfa.Akureyri.net greindi fyrst frá.Í lok september var starfsfólki heilsugæslunnar á Akureyri greint frá skipulagsbreytingum framundan, í meginatriðum voru þær þessar: * Yfirlæknum sagt upp störfum og auglýst verður ein staða yfirlæknis * Ungbarna og mæðravernd sameinuð * Heilsueflandi móttaka og ADHD teymi verður hluti af hjúkrunarmóttöku * Þjónusta við nemendur framhaldsskóla færist undir skólahjúkrun Þessar breytingar hefur starfsfólk gagnrýnt harðlega, þá sérstaklega uppsögn yfirlæknanna Jóns Torfa Halldórssonar og Vals Helga Kristjánssonar, sem þau óttist að komi ekki aftur til starfa hjá HSN. Einnig sé mikil eft