Samkomulag hefur náðst milli Ísraelsríkis og Líbanon um að framlengja vopnahlé milli landanna um einn og hálfan mánuð.Vopnahléi sem hófst um miðjan apríl átti að ljúka á morgun, sunnudag, og sendinefndir beggja ríkja höfðu rætt möguleikana á framlengingu þess með milligöngu Bandaríkjamanna síðustu tvo daga.Utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna greindi frá niðurstöðunni og boðaði að sendinefndir ríkjanna kæmu saman að nýju í maílok til að semja drög að varanlegu pólitísku samkomulagi sem yrði tilbúið 2. eða 3. júní.Ísraelsher hélt uppteknum hætti við árásir á Líbanon í gær þrátt fyrir samkomulagið, atlögurnar væru utan ramma þess.Sendinefnd Líbanons fagnaði áframhaldi vopnahlésins í yfirlýsingu og sagði liðsinni Bandaríkjanna við að tryggja öryggi ryðja brautina fyrir varanlegan stöðugleika. Líb