Sjálfstæðisflokkurinn mælist með mest fylgi allra stjórnmálaflokka í Reykjavík í glænýrri skoðanakönnun Maskínu. Flokkurinn mælist með 31,3 prósent sem er nákvæmlega sama fylgi og í Þjóðarpúlsi Gallups sem birtist í dag. Það væri mesta fylgi flokksins síðan árið 2010. Samfylkingin mælist með 19,4 af hundraði, Viðreisn tólf, Vinstrið ellefu og Miðflokkur tæp tíu. Framsóknarflokkurinn fær rúm sex prósent, Sósíalistaflokkurinn 4,5 og Flokkur fólksins 2,6. Píratar mælast með 2,4 prósent og Góðan daginn og Okkar borg með hálft prósent hvor. Sósíalistar næðu inn manni í borgarstjórn en enginn hinna síðasttöldu gerði það, gangi niðurstöður könnunarinnar eftir. Píratar fengu þrjá menn kjörna 2022 og Flokkur fólksins einn. Núverandi meirihluti er fallinn gangi þessar tölur eftir.Samkvæmt niðurstöðu