Slökkvilið fékk tilkynningu eftir klukkan 21 um eld í ruslageymslu í Breiðholti en þegar slökkviliðsmenn mættu á staðinn var hvorki reykur né eldur.Slökkvilið sendi bíla frá fjórum stöðvum á staðinn. Allt var afturkallað. Enginn var á staðnum og ekkert að sjá, sagði varðstjóri slökkviliðs við fréttastofu. Allur er varinn góður en slökkvilið fékk enga skýringu hvers vegna tilkynning barst um eld. Næsta skref samkvæmt varðstjóra verður hjá lögreglu að finna skýringu á málinu. Frétt hefur verið uppfærð.