Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins, stóð sig best í kappræðum kvöldsins á RÚV að mati áhorfenda, sem greiddu atkvæði með smáforritinu RÚV-stjörnur. Hildur fékk 22,5% atkvæða og var með töluvert forskot á næstu oddvita.Björg Magnúsdóttir úr Viðreisn fékk tæp 13% atkvæða og þau Ari Edwald í Miðflokknum, Einar Þorsteinsson í Framsókn, Pétur Marteinsson í Samfylkingunni og Silja Sóley Birgisdóttir í Sósíalistaflokknum fylgdu í kjölfarið með 11-12%. Atkvæðin í þessum samkvæmisleik voru þannig nokkuð dreifð og skeikaði aðeins örfáum prósentubrotum á röð frambjóðenda.