Forsetar Bandaríkjanna og Kína voru ósparir á yfirlýsingar um ágæti nýafstaðins fundar. Tveggja daga heimsókn Bandaríkjaforseta til Kína lauk í morgun. MIKILVÆGASTA TVÍHLIÐA SAMBAND Í HEIMI Segja má að öllu hafi verið til tjaldað fyrir heimsókn Trumps til Beijing, höfuðborgar Kína. Xi Jinping, forseti Kína, sýndi Trump meðal annars Himnahofið og opinbert heimili forsetans. Hann hélt einnig hátíðarkvöldverð fyrir Bandaríkjaforseta og sendinefnd hans.„Í dag áttum við Trump forseti ítarlegar samræður um samband Kína og Bandaríkjanna auk alþjóðlegra og svæðisbundinna mála. Við teljum báðir að samband Kína og Bandaríkjanna sé mikilvægasta tvíhliða samband í heimi.“Margir bundu vonir við að Trump gæti sannfært Xi um að setja meiri þrýsting á Írana til að fá þá að samningaborðinu og semja um f