Áhorfendur oddvitakappræðna á RÚV í kvöld geta kosið þá frambjóðendur sem þeim finnst standa sig best í gegnum RÚV-stjörnur.Í kvöld fá oddvitar allra ellefu framboðanna í Reykjavík síðasta tækifærið til að ná til kjósenda. Útsending hefst klukkan 19:45 á RÚV og Rás 2 og ráðgert er að þær standi í rúmar tvær klukkustundir.Áhorfendur geta valið þá þrjá oddvita sem þeim þykja standa sig best. Efsti oddvitinn fær þannig þrjú stig, næsti tvö stig og sá þriðji fær eitt stig. Hvernig virkar þetta? Draga þarf viðkomandi oddvita efst upp á forsíðunni í símanum, þar til númer verður sýnilegt sem sýnir í hvaða röð viðkomandi vill að oddvitarnir verði. Að því loknu þarf að ýta á "senda" eða "vista" og skilast þá atkvæðið inn. Hægt er að breyta atkvæði sínu ef fólki snýst hugur eftir því sem líður á þá