Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Sjálfstæðisflokkurinn á siglingu í lokakönnun Gallups

Sjálfstæðisflokkurinn mælist með mest fylgi allra stjórnmálaflokka í Reykjavík í nýjasta þjóðarpúlsi Gallups. Flokkurinn bætir við sig 6,8 prósentustigum frá því í sveitarstjórnarkosningum árið 2022 og mælist með 31,3% fylgi. Gangi sú könnun eftir yrði það mesta fylgi flokksins frá 2006.Næst á eftir Sjálfstæðisflokknum mælist Samfylkingin með 21,5% en flokkurinn fékk 20,3% atkvæða í síðustu kosningum.Þá mælist Vinstrið með 11,3%, Viðreisn með 9,8% og Sósíalistaflokkur Íslands með 4,8% en fast á hæla Sósíalistaflokksins mælist Framsóknarflokkurinn með 4,7%.Ef niðurstöður könnunarinnar gengju eftir næðu aðrir flokkar ekki manni inn í borgarstjórn. Píratar og Flokkur fólksin mælast með 2,3% fylgi hvor, Góðan daginn framboð með 0,6% og Okkar borg með 0,4%. FYLGI FLOKKA Í REYKJAVÍK Þjóðarpúl
Sjálfstæðisflokkurinn á siglingu í lokakönnun Gallups

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta