Franska söngkonan Claudine Longet, sem öðlaðist frægð í bandarísku sjónvarpi á sjöunda áratugnum, er látin, 84 ára að aldri. Tónlistarferill hennar féll í skuggann á umdeildu morðmáli þar sem Longet skaut kærasta sinn, skíðamanninn Vladimir Spider Sabich, til bana árið 1976. Longet hélt því fram að um slys hefði verið ræða og var dæmd fyrir manndráp af gáleysi.