Kviðdómendur í nauðgunarmáli gegn Harvey Weinstein, í máli þar sem hann hefur verið ákærður fyrir að nauðga Jessicu Mann árið 2013, segjast ekki geta náð saman um niðurstöðu í málinu. Því gæti þurft að rétta aftur yfir Weinstein en það yrði í fjórða sinn í sama málinu.