Ásthildur Sturludóttir hefur notað innkaupakort sem hún hefur til umráða sem bæjarstjóri Akureyrarbæjar fyrir rúmlega 200.000 krónur síðan í nóvember. Samkvæmt færsluyfirliti frá Akureyrarbæ var það notað fimm sinnum á veitingastöðum eða hótelum og einu sinni til að greiða fyrir leigubíl.Mestu var varið á veitingastaðnum Centrum Kitchen & Bar í byrjun febrúar, eða rúmlega 70.000 krónum. Þar á eftir er færsla upp á 50.000 á Hótel Varmalandi í Borgarnesi um miðjan apríl.Kortið var notað erlendis í eitt skipti á uppgefnu tímabili. Í lok nóvember voru greiddar rúmlega 60.000 krónur á Scandic Webers hótelinu í Kaupmannahöfn. Færslur á innkaupakorti Ásthildar 26. nóvember 2025: Scandic Webers FO – 60.138 krónur.27. nóvember 2025: Hreyfill – 2.350 krónur3. febrúar 2026: Múlaberg Bistro bar – 9.22