Landsréttur hefur snúið við dómi héraðsdóms í máli fyrrverandi deildarstjóra öryggis- og réttargeðdeildar Landspítalans og gert embætti landlæknis og íslenska ríkinu að greiða honum 800 þúsund krónur í miskabætur fyrir brot á persónuverndarlögum.Deildarstjórinn fyrrverandi taldi embættið ekki hafa mátt upplýsa Geðhjálp um að hann hefði verið sendur í ótímabundið leyfi.Forsaga málsins er sú að Geðhjálp sendi Embætti landlæknis bréf í nóvember 2020 þar sem embættið var upplýst um að fimm þáverandi og fyrrverandi starfsmenn öryggis- og réttargeðdeildar hefðu vakið athygli samtakanna á misbresti í meðferð sjúklinga.Í maí 2021 birti RÚV frétt þar sem fram kom að Embætti landlæknis hefði til athugunar alvarlegar ábendingar um slæman aðbúnað á deildinni. Daginn eftir ræddi fréttastofa við þrjá fy