Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Fögnuðu aldarafmæli Ísaksskóla

Nemendur, kennarar, foreldrar og aðstandendur komu saman í Ísaksskóla í dag þar sem blásið var til veislu vegna 100 ára afmælis skólans.Fögnuðurinn hófst með samsöng á sal en að söngnum loknum gafst gestum færi á að líta á ýmis verkefni sem nemendur hafa unnið að undanförnu. Þema vikunnar voru: gamli Ísaksskóli, núverandi Ísaksskóli og framtíðar Ísaksskóli.Í mars undirrituðu Páll Harðarson, stjórnarformaður Ísaksskóla, og Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri í Kópavogi, hafa viljayfirlýsingu um að Ísaksskóli taki að sér rekstur nýs skóla í Vatnsendahvarfi fyrir leikskólabörn og nemendur í fyrsta til fjórða bekk grunnskóla.Nýi skólinn verður rekinn samhliða skólanum í Bólstaðarhlíð í Reykjavík sem starfar áfram í óbreyttri mynd. Þar verða engin skólagjöld innheimt.
Fögnuðu aldarafmæli Ísaksskóla

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta