Tvær viljayfirlýsingar um uppbyggingu íbúðarhúsnæðis í Reykjavík á næstu árum voru undirritaðar í dag. Önnur var gerð við Bjarg íbúðafélag en hin við Félag íslenskra náttúrufræðinga, FÍN, og Visku, stéttarfélag háskólamenntaðra. Viljayfirlýsingarnar voru samþykktar í borgarráði 7. maí.Reykjavíkurborg hyggst úthluta Bjargi lóðum með byggingarrétti fyrir búseturéttar- eða leiguíbúðir á nokkrum stöðum í borginni. Þar á meðal í Gufunesi, á Veðurstofuhæð, í Grundarhverfi á Kjalarnesi og á Kringlureit. Þá hefur borgarráð samþykkt að Bjarg taki við lóðarvilyrði fyrir byggingarrétti á allt að 50 íbúðum við Leirtjörn í Úlfarsárdal. Fyrirhugað er að þar rísi húsnæði fyrir eldri borgara en vilyrðinu hafði áður verið úthlutað Leigufélagi aldraðra. FÉLAGSBÚSTAÐIR FÁ 5-10% AF ÍBÚÐUNUM Á KOSTNAÐARVERÐI