CHARLI XCX – ROCK MUSIC Vinsældir Chari xcx í kjölfar Brat-platna hennar í hitteðfyrra má líkja við bítlaæðið sem rann á æskuna í gamla daga. Hennar nýjasta lag, Rock Music, er áframhald af hyper-popphljómi hennar með smá rokkslettu en lagið er unnið með samstarfmönnum hennar á Brat A.G., Cook og Finn Keane. NIA ARCHIVES – IN BLUE Það eru fleiri poppprinsessur en Charli xcx að daðra við rokkið þessa dagana. Nýjasta útspil Nia Archives er lagið Boys In Blue sem er auðvelt að skilgreina sem einhvers konar rokk með jungle-takti. Tónlist Nia Archives hefur einmitt hingað til oftast verið tengd við upprisu jungle-tónlistarinnar og í Boys In Blue leyfir hún sér að leika sér enn meira með formið. PINKPANTHERESS – GIRL LIKE ME Tónlistarkonan PinkPantheress hefur verið að gera mjög áhugaverð