Það verður hvasst undir Eyjafjöllum á morgun.Víðir Hólm ÓlafssonVeðurfræðingur Vegagerðarinnar varar við akstursskilyrðum við Reynisfjall og undir Eyjafjöllum fyrri hluta dags á morgun. Frá því um klukkan 6 til klukkan spáir allhvassri austanátt og rigningu syðst á landinu.Við Reynisfjall og undir Eyjafjöllum má búast við austan 13 til 18 metrum á sekúndu og hviðum allt að 25 metrum á sekúndu.„Slíkur vindur getur verið varasamur fyrir ökutæki og tengivagna sem taka á sig mikinn vind, sem og aðra,“ segir í ábendingu Páls Ágústs Þórarinssonar veðurfræðings Vegagerðarinnar.