Landsréttur hefur dæmt íslenska ríkið til þess að greiða fyrrverandi deildarstjóra réttar- og öryggisdeildar Landspítalans 800 þúsund krónur í miskabætur vegna brots á persónuverndarlögum. Landlæknir greindi Geðhjálp frá því að deildarstjórinn hefði verið settur í ótímabundið leyfi í tengslum við alvarlegar ábendingar um slæman aðbúnað á öryggis- og réttargeðdeildum Landspítalans.