Nær 120 börn á höfuðborgarsvæðinu eru utan langtíma sérskólaúrræða þrátt fyrir að uppfylla skilyrði, samkvæmt skýrslu um sérskóla. Veikleikar séu í samræmingu gagna milli sveitarfélaga. Gert er ráð fyrir að stýrihópur skili tillögum um uppbyggingu nýrra sérskóla á höfuðborgarsvæðinu fyrir lok árs.295 börn á grunnskólaaldri á höfuðborgarsvæðinu þurfa langtíma sérskólaúrræði, samkvæmt skýrslunni sem var unnin af ráðgjafafyrirtækinu HLH. Þar af eru 176 þegar í sérskóla.136 eru í Klettaskóla, sem er fyrir nemendur með fjölfötlun og þroskahömlun og á að rúma um 90 börn. 40 eru í Arnarskóla, sem sinnir börnum með miklar og flóknar stuðningsþarfir.119 börn, eða um 40% þessa hóps, uppfylla skilyrði en eru utan sérúrræða, oft í almennum skólum með miklum stuðningi. Gera megi ráð fyrir því að hluti