Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

WHO kallar eftir alhliða regluverki í kringum sölu nikótínpúða

Alþjóðaheilbrigðisstofnunin WHO (e. World Health Organization) varar við örri útbreiðslu nikótínpúða á heimsvísu. Verkefnastjóri tóbaksvarna hjá embætti landlæknis segir brýnt að taka á söluumhverfinu og nauðsynlegt að koma í veg fyrir að ungt fólk byrji að nota nikótínpúða.Í skýrslu Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar sem kom út í dag er farið yfir aukna sölu nikótínpúða um allan heim. Markaðssetningin beinist einkum að ungmennum. Viðar Jensson, verkefnastjóri tóbaksvarna hjá embætti Landlæknis, segir brýnt að koma í veg fyrir að ungt fólk sé útsett fyrir því að nota nikótín.„Þú verður háður nikótíni og ert stöðugt í því að passa að þú fáir ekki fráhvörf. Þetta hefur áhrif á svefn, skapsveiflur, einbeitingu og í raun og veru er mjög slæmt að ungt fólk sé að verða háð nikótíni,“ segir Viðar.
WHO kallar eftir alhliða regluverki í kringum sölu nikótínpúða

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta