Allir helstu vegir sem liggja að og í gegnum þjóðgarðinn á Þingvöllum verða lokaðir frá miðjum degi þann 20. júní og til miðnættis vegna tónleikahátíðarinnar Bergmáls. Frá þessu er greint á vef Þingvallanefndar.Tónleikarnir hefjast klukkan 11 við Valhöll en klukkan 14 færist dagskráin að Efri Völlum, neðan við Öxarárfoss. Fjöldi hljómsveita og tónlistarmanna stígur á svið á Þingvöllum þennan dag, þar á meðal Kaleo.Í tilkynningu Þingvallanefndar segir að það sé fyrirséð að verulegur fjöldi gesta muni gera sér ferð til Þingvalla eða allt að 20 þúsund manns.„Vegna þessa hefur lögreglan farið fram á tímabundnar vegalokanir frá kl. 15:00 á öllum helstu vegum sem liggja að og í gegnum þjóðgarðinn. Takmarkanir verða settar á: að vestan við Grafningsafleggjara, við Miðfell að austanverðu og norðan