Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Rafræn kjörskrá prófuð í Flóahreppi

Þjóðskrá vinnur að þróun kerfis sem heldur utan um rafræna kjörskrá. Kerfið virkar þannig að í stað þess að merkja við kjósendur á kjörstað á pappír er það gert með rafrænum hætti.Kjósendur í Flóahreppi verða þátttakendur í prófunum á þessari nýjung í sveitarstjórnarkosningunum á morgun. Atkvæðagreiðsla fer fram með hefðbundnum hætti en prófun á rafrænni kjörskrá verður gerð samhliða hefðbundinni merkingu á kjörstað.„Þessar prófanir eru mikilvægur liður í því að meta virkni kerfisins og verða niðurstöðurnar nýttar við áframhaldandi þróun,“ segir í tilkynningu Þjóðskrár sem vinnur verkefnið í samstarfi við landskjörstjórn.„Þegar fram líða stundir verður innleiðing rafrænnar kjörskrár stórt skref í átt að aukinni skilvirkni við framkvæmd kosninga.“
Rafræn kjörskrá prófuð í Flóahreppi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta