Eftir marga mánuði af reglulegu rafmagnsleysi á Kúbu eru olíubirgðir á þrotum, samkvæmt orku- og námumálaráðherra landsins. Líkleg afleiðing olíuskortsins sé að rafmagnsleysi sem nái yfir allt landið verði tíðara, víðtækara og vari í lengri tíma.New York Times greinir frá.Á vef Times segir að orkukreppan hafi varað í um tvö ár, orkuinnviðir séu ekki nægilega góðir og minni birgðir berist frá Venesúela. Kúbverjar vinna olíu upp að vissu magni, en innlend framleiðsla á eldsneyti getur aðeins uppfyllt um 40% af þörf landsins.Vicente de la O Levy, orku- og námumálaráðherra Kúbu, segir orkuver liggja niðri og birgðir búnar.„Við eigum bókstaflega ekkert eldsneyti, bókstaflega enga dísilolíu,“ segir de la O Levy í viðtali við Cuba Debate. „Það var rafmagnslaust í Havana í dag í meira en 20, 22 kl