Arndís Anna K. Gunnarsdóttir fyrrverandi þingmaður hefur verið ráðin lektor við lagadeild Háskólans á Bifröst.Í tilkynningu segir að Arndís búi yfir áralangri reynslu af kennslu og rannsóknum á sviði lögfræði. Hennar sérsvið eru mannréttindi, fólksflutningar og ýmis samskipti borgara og ríkisvalds.Arndís lauk meistaranámi í lögfræði frá Háskóla Íslands og LL.M.-gráðu í mannréttindum og þjóðarétti frá KU Leuven í Belgíu. Þá stundaði hún doktorsnám í mannréttindum við Háskólann í Strassborg á árunum 2017 til 2020.Hún sat á þingi fyrir Pírata á árunum 2021 til 2024. Þar áður starfaði hún sem lögfræðingur hjá Rauða krossinum á Íslandi, hjá ráðuneytum og stofnunum og sem sjálfstætt starfandi lögmaður. Arndís hefur verið formaður lífsskoðunarfélagsins Siðmenntar frá því í mars í fyrra.