Talsmaður Britney Spears segir lýsingar í götupressunni, um að poppstjarnan hafi á miðvikudagskvöld ógnað veitingastaðargestum með hnífi, öskrað og gelt, vera verulega ýktar. Hið rétta sé að Britney hafi þurft að skera hamborgara sinn til helminga og sagt borðfélögum leikræna sögu af hundi sínum.