Þrátt fyrir að í nýlegri skýrslu Alþjóðaefnahagsráðsins sé varað við því að fimm af tíu alvarlegustu áhættuþáttum næstu tíu ára tengist þeim hafa umhverfismál fengið litla athygli í kosningabaráttunni. Í kappræðum Heimildarinnar í Tjarnarbíói voru oddvitarnir beðnir um að gefa merki með handauppréttingu hvort þessi mál væru brýn í borginni. Ari Edwald, oddviti Miðflokksins, var sá eini sem rétti ekki upp...