„Ég viðurkenni fúslega að ég hefði viljað takast á við þennan sársauka betur,“ segir tónlistarmaðurinn og leikstjórinn Aron Ingi Davíðsson. Aron, sem er þrjátíu ára gamall og hefur komið víða við í senunni. Hann var meðal annars einn af forsprökkum Áttunnar og bjó um stund í Los Angeles til að læra leikstjórn og handritsgerð. Nú er hann að vinna að eigin tónlistarferli og var að gefa út lagið Gleyma þér.