„Þessi áfangi markar þýðingarmikið skref í aðildarferli Svartfjallalands og sendir skilaboð til annarra umsóknarríkja um að aðild að Evrópusambandinu er innan seilingar,“ sagði talsmaður ráðherraráðs ESB við fjölmiðla fyrr í vikunni, eftir að fastafulltrúar aðildarríkjanna samþykktu stofnun vinnuhópsins um aðildarsáttmálann. Búið er að loka fjórtán af 33 samningsköflum og stefnt er að því að öllum verði lokað fyrir næstu áramót.Svartfjallaland sótti um aðild að Evrópusambandinu árið 2008, tveimur árum eftir að ríkið lýsti yfir sjálfstæði. Svartfjallaland fékk stöðu umsóknarríkis 2011, og aðildarviðræður hófust árið eftir.Allir þrjátíu og þrír kaflar samningaviðræðnanna hafa verið opnaðir, og fjórtán þeirra hefur þegar verið lokað; nokkrir af þeim mikilvægustu eru eftir, þar á meðal kaflar