Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Tugir látnir í ebólufaraldri í Kongó

Sóttvarnastofnun Afríku hefur lýst yfir ebólufaraldri í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó. Grunur leikur á að 246 hafi smitast af ebólu í landinu og að veiran hafi dregið 65 til dauða. Nú þegar hefur greining staðfest að ebóla var dánarorsök fjögurra þeirra, að því er segir í tilkynningu sóttvarnastofnunarinnar. Af 20 sýnum sem búið er að greina reyndust 13 þeirra jákvæð. Í tilkynningunni segir að faraldur sé staðfestur í Ituri-héraði í austurhluta landsins. Sóttvarnastofnun Afríku hefur boðað til skyndifundar með stjórnvöldum í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó, Úganda, Suður-Súdan og alþjóðlegum samstarfsaðilum til að efla viðbragð við faraldrinum og hefta útbreiðslu veirunnar. NÆRRI 2.300 LÉTUST Í SÍÐASTA FARALDRI Veirufaraldrar hafa leikið lönd álfunnar grátt á síðustu áratugum. Í vesturhluta A
Tugir látnir í ebólufaraldri í Kongó

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta