Slysavarnafélagið Landsbjörg leggur til að Almannavarnir verði að sjálfstæðri stofnun með það meginhlutverk að samhæfa viðbragðsaðila hér á landi og aðgerðir þegar hættuástand skapast í stað þess að heyra undir embætti ríkislögreglustjóra.Í skýrslu starfshóps vegna jarðhræringa og eldsumbrota á Reykjanesskaga er ítrekað gerð athugasemd við óformlegt verklag, skort á skriflegu verklagi og óskýra ábyrgð við aðgerðir í Grindavík.„Það að almannavarnir séu sjálfstæð stofnun, ástæðan fyrir því að okkur þykir það mikilvægt, er þetta samhæfingarhlutverk almannavarna,“ segir Borghildur Fjóla Kristjánsdóttir, formaður Landsbjargar.Nýtt almannavarnafrumvarp sem dómsmálaráðherra ætlar að leggja fram í haust sé kjörið tækifæri til að skilgreina slíkt hlutverk.„Almannavarnir eiga að vera fyrir alla viðb