Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Rússar og Úkraínumenn skiptast á hundruðum stríðsfanga

Hermenn Rússlandshers skjóta flugskeyti í átt að skotmarki í Úkraínu.AP/Russian Defense Ministry Press Service / UncreditedStjórnvöld í Rússlandi og Úkraínu skiptust á 205 stríðsföngum hvor í morgun. Frá þessu greinir rússneska varnarmálaráðuneytið. Vika er síðan Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði frá því að umfangsmikil fangaskipti væru í farvatninu. Á sama tíma var tilkynnt um þriggja daga vopnahlé milli ríkjanna.Eftir að vopnahléinu lauk hefur sprengjum Rússlandshers rignt yfir Úkraínu. 27 almennir borgarar hið minnsta hafa verið drepnir í árásum síðustu tveggja daga, að því er segir í frétt Reuters. Volodomyr Zelensky Úkraínuforseti segir Rússa hafa skotið nærri 1.600 drónum að Úkraínu í þessari umfangsmestu árásarhrinu hersins til þessa. Björgunarmenn að störfum við rústir fjölbýlis
Rússar og Úkraínumenn skiptast á hundruðum stríðsfanga

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta