Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Veðrinu misskipt í dag og á morgun

Dýpkandi lægðardrag á Grænlandshafi dregur hægt vaxandi suðaustanátt yfir landið. Því má búast við strekkingi við suður- og vesturströndina seinnipartinn. Smá væta þar í fyrstu og svo bætir í úrkomuna þegar líður á daginn.Á Norður- og Austurlandi verður skýjað með köflum og ef til vill sólarglennur. Það verður fremur milt veður að deginum með hita að 13 stigum norðan heiða.Á morgun spáir stífri suðaustanátt með rigningu en áfram verður þurrt á Norður- og Austurlandi.Á sunnudag má gera ráð fyrir hægari austlægri átt og lítilli úrkomu. Víða næturfrost. Útlit er fyrir rólegt og úrkomulítið veður fram eftir næstu viku.
Veðrinu misskipt í dag og á morgun

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta