„Þetta byrjaði allt með nísku. Ég keypti saumavél til að laga gallabuxurnar mínar og sauma búninga á dóttur mína.“Óli tröllabarn, eins og hann er kallaður, fetar eigin slóðir með saumnálinni og kemur víða við.Á síðustu áratugum hefur hann sinnt ýmsum verkum á vettvangi viðburða og kvikmynda og saumar meðal annars leikmuni og leiktjöld og hleypur í ýmis verk við kvikmyndagerð.Nálin er aldrei langt undan og Óli saumar hlífðarábreiður fyrir hljóðfæramagnara og jafnvel stærðarinnar flygla. Það virðist engum takmörkunum háð hvað hvann tekur sér fyrir hendur.„Vinur minn á litla flugvél og innréttingin var orðin þreytt og snjáð. Ég saumaði rauða innréttingu í flugvélina og það var mjög skemmtilegt.“Nú eru klæðskerasniðnar grillsvuntur í deiglunni fyrir sumarið.