Íbúar í og nærri finnsku höfuðborginni Helsinki voru um tíma hvattir til að halda sig innandyra. Finnska ríkisútvarpið greindi frá þessu á vef sínum og sagði talið að hætta gæti stafað af flygildinu. Opnað hefur verið fyrir flugumferð um Vantaa-flugvöll við Helsinki eftir að henni var um tíma beint til Rovaniemi, Arlanda í Stokkhólmi og Tallin, höfuðborgar Eistlands. Flug- og sjóher voru í viðbragðsstöðu þótt ekki væri talið að bein hernaðarógn blasti við Finnlandi. Nokkrar orrustuþotur voru sendar á loft til öryggis. Forsætisráðherrann Petteri Orpo þakkaði öllum hlutaðeigandi skjót viðbrögð og innanríkisráðherrann Mari Rantanen sagði öllum óhætt að fara til vinnu og skóla.Fyrr í nótt greindu flugmálayfirvöld í Lettlandi frá mögulegu rofi á lofthelgi landsins. Íbúum austanvert í landinu va