Milligöngumenn Bandaríkjanna segja skref hafa verið stigin í átt að samkomulagi um framhald vopnahlés á fundi sendimanna Ísraels og Líbanons í Washington í gær. Vopnahlénu lýkur að öllu óbreyttu á sunnudag. „Að baki er heill dagur með árangursríkum og jákvæðum samræðum,“ segir ónafngreindur embættismaður innan bandaríska utanríkisráðuneytisins við AFP-fréttaveituna. Hann kvaðst vonast til að frekari tíðindi bærust eftir viðræðurnar í dag. Líbanir vilja að ákvæði vopnahlésins verði tryggð svo dauða og tortímingu megi linna í landinu. Einnig þurfi að finna leiðir til að afvopna Hezbollah-hreyfinguna og tryggja brotthvarf Ísraelshers úr suðurhluta landsins. Leiðtogar Hezbollah, sem ekki eiga aðild að viðræðunum, hafa gagnrýnt ríkisstjórn Líbanon harðlega fyrir að ræða beint við Ísraela. Frá þ