Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Fraktflugi Icelandair aflýst í kvöld vegna manneklu

Fraktflugi Icelandair frá Keflavík til Belgíu var aflýst í kvöld því ekki tókst að manna áhöfn flugvélarinnar, samkvæmt því sem upplýsingafulltrúinn Guðni Sigurðsson segir í samtali við mbl.is í kvöld. Félagið hefur því þrisvar þurft að aflýsa ferðum síðustu daga vegna áhafnarskorts og einnig hefur þurft að fresta ferðum af sömu ástæðu. Icelandair hefur sagt það benda til óformlegra verkfallsaðgerða flugmanna sem eiga í kjaraviðræðum líkt og flugvirkjar og flugfreyjur. Félag íslenskra atvinnuflugmanna hefur sagt slíkt vera af og frá.„Ég veit ekki hvernig menn vilja túlka það hvort það sé verkfallsaðgerð að vinna eftir kjarasamningi. Ég held að það sé ansi langsótt,“ sagði Jón Þór Þorvaldsson, formaður félagsins, í samtali við RÚV á þriðjudag. Í yfirlýsingu Icelandair fyrir fáum dögum sagði
Fraktflugi Icelandair aflýst í kvöld vegna manneklu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta