Ný bygging Bíldudalsskóla var vígð við hátíðlega athöfn í dag en þar verður bæði leik- og grunnskólastarf á Bíldudal undir einu þaki. Opið hús var í skólanum þar sem gestum bauðst að fá leiðsögn um nýju bygginguna og ávörp og tónlistaratriði voru flutt við tilefnið.Loka þurfti gömlu skólabyggingu Bíldudals fyrir um þremur árum vegna myglu. Fyrir vikið þurfti að flytja skólastarfið í önnur hús í bænum, svo sem Skrímslasetrið, Muggstofu og sóknarheimilið Gamla skólann en tæplega þrjátíu börn eru á leik- og grunnskólaaldri á Bíldudal.Lilja Rut Rúnarsdóttir, skólastjóri Bíldudalsskóla, segir húsavandann búinn að hafa margvísleg áhrif á bæinn.„Þetta er auðvitað ekki ákjósanlegur kostur, að kenna svona inni í Skrímslasetrinu og á Muggstofu og þetta hefur auðvitað haft áhrif á fleiri en okkur. Fé