Áætlanir Reykjavíkurborgar um að breyta Ingólfstorgi í markaðstorg í sumar falla í grýttan jarðveg hjá hjólabrettaiðkendum. Reykjavíkurborg birti myndskeið á samfélagsmiðlum sínum í gær þar sem auglýst var eftir fólki sem hefur áhuga á að vera með sölubás á sumarmarkaði á Ingólfstorgi og í Austurstræti. Markaðurinn verður opinn frá 20. maí og fram á haust.Hjólabrettaiðkendur eru ósáttir við áætlanir borgarinnar enda hefur Ingólfstorg verið miðpunktur hjólabrettaiðkunar í Reykjavík í yfir 30 ár. Hjólabrettasenan hefur mótmælt þessu kröftuglega í athugasemdum á samfélagsmiðlum Reykjavíkurborgar. RÉTTAST VÆRI AÐ BÆTA VIÐ ÍÞRÓTTINA FREKAR EN SKERÐA Inga Hrafni Guðmundssyni, hjólabrettakappa og læknanema, finnst sumarmarkaðurinn vera flott framtak hjá borginni. Honum finnst þó að það ætti að